Jeppaferðir með Hólasport
Hólasport bíður upp á dagsferðir frá Kirkjubæjarklaustri upp að Lakagígum. Í Lakaferðinni ökum við um hraun og sanda, yfir óbrúaðar ár og skoðum fossa og fjöll í návígi. Þegar upp á Laka er komið munum við ganga um stórbrotna náttúru Lakagíga og skoðum m.a. Tjarnargíg og Eldborgarfarveginn svo eitthvað sé nefnt.
Einnig bjóðum við upp á styttri ferðir á Super Eco. Þetta eru 2,5 til 3 tíma ferðir um einstaka náttúru sem við höfum nánast í bakgarðinum. Landbrotsfjara á milli Eldvatnsóss og Skaftáróss, Landbrotshólarnir, Fagrifoss og Fjaðrárgjlúfur eru staðir sem við heimsækjum. Við bjóðum upp á sérferðir á veturna sem eru þá sniðnar að ykkar óskum.


















