Fjöruferð
Jeppaferð í Landbrotsfjöru
Come and see Iceland
YOU AIN´T SEEN NOTHING YET !
Fjöruferðin á Super Eco er frábær upplifun fyrir alla fjölskylduna. þar er ekið sem leið liggur yfir vötn og sanda alveg að fjöruborðinu. Stoppað um stund þar og gefst tækifæri til að standa við sjóinn og láta öldur Atlantshafsins leika við fæturnar. því næst er ekið að Eldvatnsósi þar sem við skoðum gamalt skipsflak. Alltaf er möguleiki á að sjá seli í ósnum sem og við fjöruborðið því að þeir eru mjög forvitnir. þaðan er ekið að gömlu skipsbrotsmannaskýli sem nýlega er búið að gera upp sem og setja upp sögusýningu með gömlum munum úr skýlinu. Þar er viti sem gaman er að klifra upp fyrir þá sem þora og njóta útsýnisins. Á leiðinni heim ökum við síðan inn í hið stórbrotna og stórskrýtna landslag sem Landbrotshólarnir eru. Við stoppum þar og fræðumst um gígana, myndun þeirra og sögu.
Þessi ferð er í boði allt árið
Hvernig ferð: 4x4 jeppaferð
Ferðatími: 2,5 - 3 klst
Verð: 22.500 á mann, lágmark 2 farþegar
Muna eftir: Hlýjum fötum, myndavél og góða skapið
50% afsláttur fyrir börn yngri en 12 ára


















