Fjöruferðin
Fjöruferðin c.a. 3,5 klst.
YOU AIN´T SEEN NOTHING YET !
Fjöruferðin okkar tekur um 3,5 klst og sameinar svartan sandinn og hið stórbrotna landslag Landbrotshólana.
Í þessari ferð ökum við yfir vatn, innan um risastóra melkolla og eftir fjöruborðinu. Skoðum skipsflak, klifrum upp í vitann og fáum okkur kaffi í gamla skipbrotsmannaskýlinu sem stendur við vitann. Í skýlinu er klósett og rennandi vatn.
Þar hefur verið sett upp safn af gömlum munum sem tilheyrðu skýlinu ásamt söguspjöldum um skipsströndin og reimleika sem fylgja fjörunni.
Á leið okkar til baka ökum við síðan inn í Landbrotshólana og fræðumst um myndunarsögu þeirra og crossum um þá á sérsniðnum brautum. Þessi ferð er allt í senn frábært fjör og ævintýri sem og rólegheita náttúruskoðun á svæði sem er ekki svo aðgengileg fólki á annan máta en samt svo nálægt. Við fáum eiginlega það besta sem hægt er að skoða og upplifa á Suðurlandi í þessari ferð.
Fyrir hópa er mögulegt að fara á bæði bílnum og hjólum þar sem fólk getur síðan skipt eftir vild og ekið um alla fjöru.á fjórhjólunum.
Þessi ferð hefur það allt. Hraun, vatn, sand, sjó, gervigíga, endalausa víðáttu og heilmikið fjör.
Ferðatími: 3 - 3,5 klst
Innifalið: Kaffi djús og kleinur
Verð: kr. 22.500 á mann/tveir á hjóli
Bættu við kr. 5.500 á fyrir einn á hjóli
Aldurstakmark 5 ára
Ökuskírteini þarf til að aka fjórhjóli
Lágmark 2 í ferð
50% afsláttur fyrir börn undir 12 ára



















