UM OKKUR - UM HÓLASPORT
Hólasport var stofnað árið 2010 af bræðrunum Trausta og Guðmanni Ísleifssonum og fjölskyldum.
Eftir 18 ára farsælan rekstur verktakafyrirtækis í Reykjavík langaði okkur að breyta til. Ferðalög hafa alltaf verið stór þáttur í okkar frítíma með fjölskyldunni og í góðra vina hópi. Við höfum ferðast um allt hálendi Íslands á jeppum og vélsleðum í yfir 20 ár jafnt sumar sem vetur og af hverju þá ekki að sameina vinnu og áhugamál. Úr varð að stofna Hólasport sem yrði afþreyingafyrirtæki fyrir ferðamenn, íslenska sem erlenda.
Markmiðið er að fá ferðamenn til að stoppa lengur á okkar svæði, njóta náttúru og gestrisni , fræðast um mannlífið og sögu svæðisins með staðarleiðsögumanni. Guðmann og Trausti hafa báðir full réttindi til aksturs ferðamanna á mikið breyttum bílum ( Super Jeep)
Var nú fjárfest í 10 fjórhjólum og Ford Econoline jeppi á 44“ dekkjum, 11 farþega bíll sem við áttum fyrir, var gerður upp í farþegakeyrslu . Einnig var fjárfest í 14 manna Ford econoline og létum við breyta honum frá grunni og setja hann á 46" dekk með öllu tilheyrandi.
Öll nauðsynleg leyfi eru til staðar s.s. hópferðaleyfi frá Vegagerðinni og ferðaskipuleggjandaleyfi frá Ferðamálastofu. Nýtt ævintýri er byrjað.
You aint seen nothing yet!



















