Mountain expedition - Super Jeep
Fagrifoss og Fjaðrárgljúfur 2 klst
Skemmtileg ferð fyrir alla fjölskylduna. Ekið er upp Lakaveg að Fagrafossi sem er í Geirlandsá. Fagrifoss er tilkomumikill foss sem er svolítið falin perla. þaðan ökum við svo niður að Fjaðrárgljúfri þar sem við stoppum ofan við gljúfrið og hleypum farþegum út. þar gengur fólk síðan niður að gljúfrinu og niður eftir gljúfurbarminum . Bíllinn mun svo bíða eftir ykkur á bílastæðinu neðan við gljúfrið. Einnig munum við skoða Landbrotshólana á leiðinni til baka.
Á vetrartíma er ekki öruggt að vegurinn sé opinn vegna snjóa eða aurbleytu
Brottför: Frá Kirkjubæjarklaustri kl 09.00 , 14:00 og 20:00 alla daga
Ferðatími: c.a. 2,5 klst
Verð: Kr. 16.500 á mann/ lágmark 2 farþegar
50% afsláttur fyrir börn undir 12


















