Upplýsingar um hjólin og bílana sem við notum
Hólasport á og rekur 10 fjórhjól sem öll eru tveggja manna. Hjólin eru af gerðinni LINHAI 300 cc.árg 2010. þau eru sjálfskipt, létt og meðfærileg og mjög auðveld í allri stjórnun. Þau eru götuskráð og tryggð fyrir ökumann og einn farþega. Enga sérstaka reynslu þarf til að aka þessum hjólum en ökumaður þarf að hafa bílpróf. (B réttindi)
Til aksturs ferðamanna rekur Hólasport 4 bifreiðar. 2 sérútbúna Ford Econoline , 11 farþega á 44"dekkjum og 14 farþega bifreið á 46" dekkjum, og 2 stk Ford F350 King Ranch árg 2006.
Að sjálfsögðu getum við útvegað auka bíla fyrir stærri hópa ef með þarf


























