Skip to Content

Hólasport

Hólasport - Fjórhjólaferðir

Fjórhjólaferðir með Hólasport

Jeppaferðir í Lakagíga

FRÓÐLEIKUR UM SVÆÐIÐ OKKAR

  • strict warning: Non-static method view::load() should not be called statically in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/views.module on line 1113.
  • strict warning: Declaration of views_handler_field::query() should be compatible with views_handler::query($group_by = false) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_field.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of content_handler_field::element_type() should be compatible with views_handler_field::element_type($none_supported = false, $default_empty = false, $inline = false) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/cck/includes/views/handlers/content_handler_field.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_argument::options_validate() should be compatible with views_handler::options_validate($form, &$form_state) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_argument.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_argument::query() should be compatible with views_handler::query($group_by = false) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_argument.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_sort::options_validate() should be compatible with views_handler::options_validate($form, &$form_state) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_sort.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_sort::options_submit() should be compatible with views_handler::options_submit($form, &$form_state) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_sort.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_sort::query() should be compatible with views_handler::query($group_by = false) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_sort.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_filter::options_validate() should be compatible with views_handler::options_validate($form, &$form_state) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_filter.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_handler_filter::query() should be compatible with views_handler::query($group_by = false) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/handlers/views_handler_filter.inc on line 0.
  • strict warning: Declaration of views_plugin_query::options_submit() should be compatible with views_plugin::options_submit($form, &$form_state) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/plugins/views_plugin_query.inc on line 0.
  • strict warning: Non-static method view::load() should not be called statically in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/views.module on line 1113.
  • strict warning: Declaration of views_plugin_row::options_validate() should be compatible with views_plugin::options_validate(&$form, &$form_state) in /home/holaspor/public_html/gamla/sites/all/modules/views/plugins/views_plugin_row.inc on line 0.

Hótel Laki

Hjá okkur geturðu valið um að gista á hótelinu eða í smáhýsum. Upplifið kyrrð sveitarinnar, bjartar sumarnætur eða vetrarmyrkur og norðurljós. Við leggjum okkur fram um að veita eins góða þjónustu og kostur er.

Níu holu golfvöllur er fyrir utan hóteldyrnar. Í víðáttunni geturðu notið útsýnis til tveggja jökla, hafs og fagurra fjalla.

Veiði
Vatnið Víkurflóð er 500 metra frá hótelinu. Þar er hægt að renna fyrir bleikju, urriða og sjóbirtingi.
Í næsta nágrenni er áin Grenlækur sem er afbragðs stangveiðiá.  Sjóbirtingur, urriði og bleikja veiðast þar.

Skaftárhreppur
Skaftárhreppur er austurhluti Vestur Skaftafellssýslu og afmarkast hann nálægt Blautukvísl  á Mýrdalssandi að vestan, um Mýrdalsjökul í Strútslaug og um Hábarm í Kirkjufellsós. Þaðan ræður Tungnaá í Vatnajökli og að austan liggja mörkin um vestanverðan Skeiðarársand.

Hreppurinn dregur nafn sitt af ánni Skaftá, sem á aðalupptök sín undir Skaftárjökli og rennur til sjávar í Veiðiósi og Kúðaósi. Lengd hennar frá upptökum til ósa er um 115 km. Skaftárhreppur var stofnaður árið 1990 úr 5 hreppum, Hörgslandshreppi, Kirkjubæjarhreppi, Leiðvallahreppi, Skaftártunguhreppi og Álftavershreppi. Aðal atvinnuvegur íbúanna er landbúnaður, ferðaþjónusta og önnur þjónusta. Þann 1. desember 2008 voru íbúar Skaftárhrepps 467. Landslag og gróðurfar í Skaftárhreppi er mjög fjölbreytilegt og andstæður í náttúrunni miklar. Veðursæld er mikil, mildir vetur og hlý og sólrík sumur. Miklar náttúruhamfarir af völdum eldgosa og jökulhlaupa hafa í gegnum aldirnar mótað landslag og mannlíf héraðsins. Árið1783 rann mikið hraunflóð úr Lakagígum á Síðumannaafrétti, kallast það Skaftáreldar. Er það talið eitt mesta hraunflóð sem runnið hefur á jörðinni á sögulegum tíma í einu gosi. Hraunstraumarnir fylltu gljúfur Skaftár og Hverfisfljóts og runnu þar til byggða í tveimur elfum og breiddust svo út yfir láglendið. Hraunið tók af marga bæi og eyddi stórum landsvæðum í byggðinni. Öskufall varð mikið og afleiðingar eldgossins urðu skelfilegar fyrir íbúa héraðsins, sem og aðra landsmenn. Tímabilið um og fyrst eftir gosið er nefnt Móðuharðindin. Í Mýrdalsjökli er eldstöðin Katla sem margsinnis hefur gosið frá því að sögur hófust, síðast árið 1918. Mikil jökulhlaup hafa fallið niður Mýrdalssand í kjölfar Kötlugosa og ógnað byggðum í nágrenninu. Þá hafa einnig orðið mikil eldgos á sögulegum tíma í Eldgjá í Skaftártungu og í Öræfajökli, auk eldgosa í smærri eldstöðvum.

Kirkjubæjarklaustur
Staðurinn hét Kirkjubær á Síðu fyrr á tíð og var þar löngum stórbýli. Þar hefur nú myndast kauptún, eina þéttbýlið í hreppnum með um 120 íbúa.
Kirkjubæjarklaustur, í daglegu tali nefnt Klaustur, er miðsvæðis í hreppnum og þaðan liggja leiðir til allra átta. Þjóðvegur nr. 1 (hringvegurinn) liggur í gegnum hreppinn.


Á Kirkjubæjarklaustri er stunduð verslun og er þar margvísleg þjónusta við íbúa og ferðamenn. Kirkjubæjarklaustur á sér langa og merka sögu. Talið er að fyrir landnám norrænna víkinga hafi Papar haft búsetu á Kirkjubæjarklaustri, segir sagan að þar hafi ávallt búið kristnir menn en heiðnum mönnum hafi ekki verið heimil búseta. Þar bjó landnámsmaðurinn Ketill hinn fíflski. Eftir Ketil vildi Hildir Eysteinsson úr Meðallandi færa bú sitt í Kirkjubæ, en hann var maður heiðinn. Er hann kom að túngarði féll hann örendur niður og liggur í Hildishaugi sem er klettahóll skammt austan Klausturs. Árið 1186 var stofnað nunnuklaustur af Benediktsreglu í Kirkjubæ. Klausturhald hélst nær óslitið fram til siðaskipta árið 1554. Mörg örnefni á staðnum og þjóðsögur tengjast klausturlífinu og kirkjusögunni.

Frá Kirkjubæjarklaustri er stutt í nokkrar þekktustu náttúruperlur á Íslandi eins og Jökulsárlón, Skaftafell, Lakagíga og Landmannalaugar.

Í Vatnajökulsþjóðgarði, í Vestur-Skaftafellssýslu í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur, eru hinir frægu og sögulegu Lakagígar.


Lakagígar eru stórfengleg 25 km löng gígaröð á Síðumannaafrétti. Liggur hún frá móbergsfjallinu Hnútu, til norðausturs í gegnum fjallið Laka, sem er 818 metra yfir sjávarmáli, og endar í Vatnajökli. Laki stendur nokkurn veginn í miðri gígaröðinni og af honum er frábært útsýni yfir gígaröðina og landslag afréttarins. Það er óhætt að segja að útsýni yfir svæðið sé einstakt bæði vegna sérstæðrar náttúrunnar og vegna þeirrar sögu sem fylgir gígunum.


Lakagígar urðu hluti af Skaftafellsþjóðgarði árið 2004, Skaftafellsþjóðgarður varð svo hluti af Vatnajökulsþjóðgarði í júní 2008, en Lakagígar teljast til merkilegra jarðfræðiminja á heimsvísu. Þann 8. júní árið 1783 hófst eitt mesta hraungos sem orðið hefur á jörðinni á sögulegum tímum og olli einum mestu harðindum Íslandssögunnar. Hraunflóðið féll um farveg Skaftár, fyllti Skaftárgljúfur sem talið var um 200 metra djúpt og breiddist síðan út yfir láglendið á Síðu og yfir nokkra bæi, Hraunálma sem rann austur með Síðufjöllum, stöðvaðist þar sem nú heitir Eldmessutangi rúmlega mánuði síðar, eða þann 20. júlí. Hraungosinu lauk þó ekki þarna því aðeins rúmri viku seinna, þann 29. júlí 1783, hófst gosvirknin aftur og þá opnaðist gossprunga norð-austur af Laka. Hraunflóðið féll í farveg Hverfisfljóts, fyllti gljúfur þess og breiddist síðan út yfir Fljótshverfi. Gosið hélt áfram fram í október en þá fór að draga úr því. Gosinu lauk í febrúar árið eftir, eða 1784. Þetta er talið eitt mesta hraun sem runnið hefur á jörðinni í einu gosi síðan sögur hófust.


Í gosinu kom upp mjög mikil gjóska og barst aska um stóran hluta landsins þó öskulag hafi hvergi orðið verulega þykkt. Í kjölfar gossins urðu mikil harðindi á Íslandi sem nefnast Móðuharðindin. Af þessum sökum varð hungursneyð á Íslandi á árunum 1783-1786 og fækkaði fólki um 20%. Þá er talið að um 82% sauðfjár, 53% nautgripa og 77% hrossa hafi fallið í kjölfarið. Aska og súrt regn frá gosinu barst þó mun víðar en aðeins um Ísland því hennar varð vart á meginlandi Evrópu og barst um allt norðurhvel jarðar.


Lakagígaröðin er um 25 km að lengd en Skaftáreldahraun er talið vera um 565 km2 og rúmmál þess um 12 km3. Lengd þess er talin vera um 60 km en það er óhætt að segja að tölur þessar gefi litla og óljósa mynd af því gífurlega magni af hrauni sem þarna rann. Stórkostleg saga og fagurt landslag einkenna Síðuafrétt. Flestir Lakagíga eru í dag huldir grámosa en þess má geta að gjall er laust, molnar fljótt og mosinn er mjög viðkvæmur. Þannig hverfa för úr honum mjög seint og því ber að fara eftir umgengnisreglum, fylgja einungis merktum gönguleiðum, nota áningaaðstöðu við Laka og Tjarnagíg og aka ekki út fyrir vegi. Hægt er að ganga eftir fimm stikuðum gönguleiðum um svæðið sem er einkar viðkvæmt fyrir ágangi en það var fyrst friðlýst árið 1971. Ferðamenn eru því hvattir til þess að leita sér upplýsinga áður en haldið er inn á svæðið.


Markmiðið með friðlýsingunni er að varðveita þetta einstaka og viðkvæma svæði. Í ljósi nýlegrar umræðu um náttúruvernd á Íslandi er ljóst að ekki veitir af að vernda söguleg og merkileg svæði svo komandi kynslóðir fái notið þeirra eins og samtímamenn okkar. Á Kirkjubæjarklaustri er starfsmaður Vatnajökulsþjóðgarðs allt árið um kring, með starfsaðstöðu í Kirkjubæjarstofu, en yfir sumartímann er landvörður í Laka sem m.a. veitir ferðamönnum upplýsingar.

 
 
 
 
Upplýsingar af vefnum klaustur.is