Landbrotshólaferðin
Landbrotshólaferðin c.a. 2 klst.
YOU AIN´T SEEN NOTHING YET !
Við byrjum ferðina frá Hótel Laka þar sem við erum staðsett og förum rakleiðis inn í hóla þar sem við ökum innan um gígana í návígi og rólegheitum eftir slóðum sem eru sérsniðnar að hjólunum, klifrum upp á þá og fræðumst um myndun og sögu hólana. Þarna eigum við ekki von á að sjá annað fólk eða farartæki. Það er gaman að sýna fólki margbreytileika hraunsins eftir því hvort það rann yfir vatn og myndaði gervigíga eða ekki.
Eftir heilmikla náttúruskoðun með myndastoppum við hæfi hvers og eins ökum við inn í motocrossbrautina sem notuð var í Klausturskeppninni fyrir nokkrum árum og crossum um hana. Þessi ferð er fyrir alla hvort sem fólk er að sækjast eftir einstakri rólegri náttúruskoðun eða hörku fjöri. Við sníðum ferðina alltaf eftir getu og áhuga þeirra sem í ferðina fara þannig að öruggt er að allir komi sáttir og ánægðir heim.
- Ferðatími: 2 klst
- Verð: 19.500 á mann/ tveir á hjóli
- Bættu við kr. 3.000 á mann fyrir einn á hjóli
- Aldurstakmark 5 ára
- Ökuskírteini þarf til að aka fjórhjóli
- 50% afsláttur fyrir börn undir 12 ára


























