Lakagígar
Lakagígar 8-9 klst
Þetta er alvöru ferð, allan tímann á hálendisvegi og er í senn frábær Super Jeep ferð sem og gönguferð um Lakagíga.
Það er farið frá N1 á Kirkjubæjarklaustri kl 9 um morguninn á 14 farþega Ford Econoline á 46" dekkjum.
Hægt er að sækja fólk á nálæga gististaði.
Við byrjum á að stoppa við Lakaveg og lina í dekkjunum niður í c.a. 8 pund . Það er eiginlega nauðsynlegt þar sem vegurinn getur varla á stundum flokkast sem vegur. Síðan er ferðin útskýrð og sýnt á korti hvert ekið er og hvar er stoppað.
Við komum upp á Laka eftir c.a. 1,5 klst. Þar er áð í um 2 klst eða svo meðan fólk gengur á fjallið Laka og í gígana næst fjallinu. Þá er ekið í Tjarnargíg. Þar er gott að setjast niður og fá sér smá hressingu áður en gengið er að gígnum og niður Eldborgarfarveginn. Það er sami farvegur og hraunið rann úr Tjarnargíg. Gangan tekur um 1 klst og er auðveld. Við færum bílinn á annað bílastæði og tökum á móti fólki þar. Því næst er Lakahringnum lokað við fjallið Galta og ekið sömu leið til baka. Fólki er að sjálfsögðu sagt frá Lakagosinu og öllum staðreyndum þar um.
Við stoppum því næst við Fagrafoss og skoðum hann stutta stund. Síðasta stoppið er við Fjaðrárgljúfur.
Þar hleypum við fólki út ofan við gljúfrið þar sem það gengur niður eftir gljúfurbarminum. Gríðarstórt og stórfenglegt gljúfur um 100 m djúpt , allbreitt og c.a. 2 km langt. Þetta er stutt og auðveld ganga sem tekur um 30 mín. Við færum bílinn á bílastæðið neðan við gljúfrið. Frábær endir á æðislegri ferð. Við komum svo aftur á Klaustur um kl 17:00.
Það þarf að taka með nesti fyrir daginn.
Á þessum vegi eru nokkrar óbrúaðar ár sem geta vaxið mjög hratt og jafnvel orðið ófærar með öllu litlum jepplingum.
Það er ekki vandamál sem við höfum áhyggjur af.
Hvenær: Frá miðjum júní og út októbermánuð eða meðan vegurinn er fær
Ferðatími: 8-9 klst
Verð: 32.500 á mann
Lágmark 2 farþegar
Muna eftir: Myndavél, útivistafötum, gönguskóm og nesti fyrir daginn
50 % afsláttur fyrir börn undir 12 ára
























